Mosi
Ég hvet þig til að fara úr skónum, ganga inn í rýmið og leyfa því að taka á móti þér og halda utan um þig.
Snertu, leggstu, vertu.
Frá því ég fékk einhverfu greiningu 21.árs, hef ég verið að kynnast sjálfri mér upp á nýtt. Í gegnum ferlið hef ég verið að átta mig á hinum ýmsu hlutum sem voru mér ósýnilegir áður. Þar á meðal er uppgötvunin hversu mikil áhrif skynáreiti hefur á mig. Einhverfu fylgir oft mikil næmni á skynáreiti í daglegu lífi. Áreiti eins og lykt, hljóð, ljós, hitabreytingar og nærvera annarra. Þetta stanslausa áreiti getur valdið andlegri og skynrænni örmögnun, svo í sumum tilfellum líkamlegum sársauka. Þegar ég er komin í þetta ástand andlegrar og skynrænnar örmögnunar, þá leita ég í þægilegt og öruggt rými til að koma mér aftur í jafnvægi.
















Mosi is a solo exhibition shown in Naflinn, located in the Iceland University of the Arts, 2024.